|
N�?�?�?�??�?�??�?½tt �?�?�?�??�?�??�?¡ Pyrana er..
13.apríl ; Slúður og
blogg
|
01.04.2008 18:10:03 / _pyrana_
Sælar elsku dúllurnar mínar  Þetta er hún Steinunn sem situr hérna og glamrar á lykklaborðið! Við verðum að ræða saman um þessa utanlandsferð..  ég veit að okkur dauðlangar öllum að fara í hana en ef þa gerist ekkert þetta sumar mun ábyggilega aldrei neitt gerast með þessa ferð.. Þannig að mín pæling var sú að annaðhvort VERÐUM við að hittast strax og henda þessu í framkvæmd eða þá að við skiptum niður peningunum sem við höfum safnað okkur.. Svarið þessu! Við verðum að gera eitthvað í þessu..  -Love steinunn ;*
»
02.10.2007 19:13:44 / _pyrana_
steeelpur við verðum að fara að hittast ef að við ætlum í þessa útlandaferð einvher sem er með ásu á msn má endilega spyrja hana útí þetta. kv.hreeeeeeeefn
»
20.09.2007 18:22:22 / _pyrana_
Í dag fyrir nákvæmlega 16 árum kom hún Eva Ýr í heiminn og viljum við óska þér innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn ;* 
Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag hún á afmæli hún EvaÝr hún á afmæli í dag. Til hamingju frá öllum í pyrana ;**
»
07.09.2007 12:07:12 / _pyrana_
Jæja það var kannski pínu kominn tími á mig að blogga þar sem það er sona sirka öld síðan ég bloggaði á þessari blessuðu síðu Er stödd í skólanum í lífsleikni sem er bara endalaust gaman var einmitt í þessu að halda fyrirlestur um snyrtifræði jeeeij hehe en já það er bara margt framundan hjá mér eins og böllin og busaferðin þessa helgi og í kveld er chris lake verður æði vona ég;D en annars er ég voða lítið búin að gera nema vera í skólanum og læra heima og sofa 
--->Dökkhærð En ég ætlaði nú bara sona rétt að láta heyra í mér og lífga þessa blessuðu síðu við hehe oog ég skal reyna að standa mig stelpur ;* Takk fyrir;** --SandraDöggBirgisdóttir 
<---ljóshærð Btw. hvað segjiði á ég að vera ljóshærð eða dökkhærð?? Comment?
»
09.08.2007 15:55:24 / _pyrana_
Ok vá ég er
búin að skoða allt á netinu sem mögulega hægt er að skoða og
oftar en einu sinni, svo kemst ég ekki inná myspace í
augnablikinu svo ég get alveg eins bloggað
smá.
Sumarið er
að verða búið sem ég skil ekki alveg þar sem það byrjaði
fyrir svona tveimur dögum! Annars er þetta bara búið að vera
fínt sumar þó að það toppi ekki það seinasta. Það sem er búið
að standa uppúr þessu sumri hjá mér er klárlega þórsmörk,
sweden og akureyri, allt
klassaferðir.
þórsmörk
beibí

Í Svergie
með Mc'Donalds, klikkar ekki

heitar á
pallaballinu á ak.
En já um
helgina fór ég á akureyri var reyndar bara eina nótt en það var
samt mjög gaman og palli var um kvöldið og hann klikkar sjaldan
en það var nóg af góðu fólki á akureyri og ég, nína, jóhanna,
erna,, birgitta, pétur og villi gistum á hótel kea jújú klassi á
okkur
annars er ég
ekki búin að gera mikið merkilegt í vikunni bara vinna, æfingu,
chilla með stelpunum og jújú ég, erna, svandís, jóhanna og nína
skelltum okkur í keilu á þriðjudaginn og erna sem hefur lengi
haldið því fram að eini hæfileiki sé keila og að hún sé miklu betri
en við tapaði og þá er ég að tala um seinasta sætið af fimm og að
sjálfsögðu vann ég með miklum yfirburðum. Já hún erna skaut sig
aldeilis í fótinn með þessum yfirlýsingum t.d. þegar við báðum
konuna í afgreiðslunni að setja grindurnar upp en hún vildi það
ekki því það er víst bara fyrir tólf ára og yngri sagði erna : mér
er alveg sama þá er bara auðveldara fyrir mig að vinna ykkur. En
svo tapaði hún bara og er hæfileikalaus sem stendur eða á eftir
finna sinn hæfileika, endilega kommentið ef þið vitið um einhvern
hæfileika sem hún býr yfir svo hún geti tekið gleði sína á
ný.
Talandi um
gleði þá komu freyja & dillý frá dk í gærkvöldi og gaypride er
um helgina avúhú fyrir því! Það er eitthvað sem maður má ekki láta
framhjá sér fara svo menningarnótt 18.ágúst og svo byrjar bara
skólinn. Sjæsinn áður en ég veit af er ég orðin fertug,
tvífráskilin, feit í flíspeysu og með loðinn fæðingablett á hægri
kinninni(það er kona sem er alltaf með mér í strætó morgnanna sem
er með þannig, hann ásækir mig í svefni!). Eins gott að þið hafið
ekki hlegið að ástandi mínu á fertugsaldrinum því ég verð pottþétt
í góðu ástandi miðað við ykkur.
Jújú ljómandi
færsla hér á ferð annars er ég eins og áður sagði bara í vinnunni
og þetta er búin að vera frekar viðburðalítill dagur fyrir utan
þegar Nína hringdi í mig áðan með þær gleðifréttir að hún var að
komast inn í versló var ekkert smá ánægð að heyra það vonum
bara að hún lendi í 3.L með kjellunni
Hrefna yfir og
út.
p.s. ef þið vitið um
eitthvað skemmtilegt til að skoða á netinu í guðanna bænum látið
mig vita.
»
01.08.2007 09:34:52 / _pyrana_
jææææææja,
Hvert
ætlar lýðurinn að skella sér um Verslunarmannahelgina?

Bloggaðu sjálf Hrefna.
»
20.07.2007 09:16:10 / _pyrana_
Heyrðu heyrðu haldiði ekki bara að hún Svandís
okkar eigi afmæli í dag, jú svei mér þá og það á Þorláksmessu að
sumri, vúhú tvöföld ástæða til að fagna
En já núna er hún orðin sweetsweet sixteen(:
Svandís eða svansa eða skonsa þó hún kjósi nú
fyrsta nafnið er þekkt fyrir marga eiginleika T.d. er hún
eina af okkur vinkonunum sem kann að borða í hófi, mannglögg, með
einstakan hlátur og hefur þann hæfileika að skreyta tilveruna með
ýmsum frösum og gjörðum, þessi stelpa er bara gull enda er góð
ástæða fyrir því að við erum alltaf með henni.

haha frábær mynd, svandís tanmaster
En eigðu æðislegan dag;*
heyrðu svo á Alexander Már líka afmæli í dag og
óskum við honum líka innilega til hamingju með daginn;*
fyrir hönd Pyrana
Hrefna.
»
18.07.2007 00:20:33 / sigga
Kannski komin
tími á blogg?
Uu segja
aðeins frá því sem hefur dregið mína daga að undanförnu
,,
Fór til Rhodos í byrjun Júní
með mömmu,pabba,halldóru, ástu fml og berglindar
fml. Það var hin fínasta ferð og þar kynntist maður einnig fullt af
fólki einsog mikka&samma&inguheiðu&alexóla&aron
t.d. og þar var bara tjillað og tanað og legið á ströndinni og
farið í vatnsrennibrautagarðinn og þetta venjulega bara
.. J
nammi,, og hvítingi ..
og endi og smá tan

Kom svo heim í sirka viku og það var bara
tjillað og unnið e-ð smá og svonna Svo helgina áður en Svíþjóð
var þá skelltum ég, tinna, hrefna, diljá, haffi, alli, birgitta,
erna og jóna okkur í Þórsmörk og sú ferð einkendist af svita,
labbi, sólbaði og það má ekki gleyma því þegar við vöðuðum í gegnum
klettinn í íísköldu vatni sem ég man reynar ekki allveg hvað heitir
í augnablikinu een þetta var meeeget gaman bara takk fyrir þá
ferð allir sem voru þar
þórsmerkur crewið
Oooog svo kom Svíþjóðarferðin =D Hún var geðveik bara =)
en einkendist reyndar mikið af rigningu eeen það er bara ágætt
kyntumst fullt af nýju fólki þar, sem er lika bara gaman fórum í
Skara Sommerland, Verzla , Tívolí, Verzla, Keppa, Verzla, Horfá
landsleiki hjá U-19, Verzla, Tívolí, Verzla, Verzla, Verzla og já
Verzla eeen það var bara mjög gaman í þessari ferð,, og í henni
voru minningar sem munu sjaldan gleymast get ég sagt ykkur ! ..
alltaf gaman þegar allir eru vinir :‘D eeen takk æðislega fyrir
þessa ferð allir sem voru í henni og jáá J
biða eftir
sporvagn ,,
gjellubeip
oog þær unnu
loksins á endanum 
endir,,
Og
svo var komið heim og svo skelltum við stelpurnar ,, eða ég,
heiðdís, freyja, svandís, hrefna, nína og jóhanna okkur á
laugarvatn í útileigu sem var nú bara ágætis útileiga ..
J
toppaði nú samt ekki Þórsmörk !;D eeeen
við löbbuðum einmitt hálfnaktar frá Apavatni og að Laugarvatni bara
til að komast í sund í þvílíkri sól og hita og það meðfram
þjóðveginum :‘D hehe allveg kostulegt ,, allt bara til að komast í
sund ,, fórum svo lika e-ð í apavatn og á trampolín og í matarslag
útá túni og svona skemmtilegheit .. J
myndir úr þessari ferð koma innan skamms
þar sem Hrefna er ekki buin að láta þær á netið

Eeeen ég held ég nenni ekki að hafa þetta
mikið lengra í bili ,, búin að koma öllu frá mér sem ég þurfti að
koma frá mér þannig ..
Sigga litla kveður í bili
Bless.
Comment ?
»
21.06.2007 10:44:30 / _pyrana_
Eitt gott
dæmi um það hvað ég og Hrefna skemmtum okkur afspyrnuvel í
vinnunni
HrefnaDís
says:
hey bloggaðu beibí
Heiðdís says:
hey skjóttu mig
beibí
HrefnaDís says:
ég skal gera það þegar þú
ert búin að blogga, því þá ertu einskis virði hvort eð
er
Heiðdís says:
vá, þetta gaf méf löngun til
blogga!
HrefnaDís says:
ég tek þetta allt á
sálfræðinni stúlka góð
Heiðdís says:
en þá verðuru að botna kaldhæðnina við þetta
stúlka betri
HrefnaDís says:
broskallinn setti mig
útaf laginu, ég les fólk
eins og opna bók en á msn sjáðu til þá sé ég ekki
líkamstjáningu, raddblæ og því um líkt og þess vegna er ég
ekki 100% þegar það kemur að msn
Heiðdís says:
hoho ég setti þig útaf laginu, talandi um
master.. en hvernig gastu fengið það út að mig lanagði virkilega að
blogga ef þú ætlaðir að skjóta mig eftir að ég væri búin því þá
væri ég einskis virði.. Sálfræðingar hugsa rökrætt.
Er þetta rökhugsun?
tjah..
HrefnaDís says:
sko þar hefur kolrangt fyrir þér, sálfræðingar eiga einmitt
ekki að hugsa rökrétt heldur út fyrir ramman því jú, flest allir
sem koma til þeirra eiga við geðrænt vandamál að stríða þá segir
það sig sjálft að það er ekki til orðið rökhugsun í þeirra orðabók.
Þess vegna vtium við sálfræðingarnir aldrei við hverju við eigum að
búast og þetta samtal við áttum væri fullkomnlega eðlilegt miðað
við sjúkan
einstakling sem þú flokkast efalaust
undir
Heiðdís says:
jújú mikið rétt en sjáðu til, einstaklingar sem
koma til sálfræðinga hafa oftar en ekki ástæðu fyrir geðrænu
vandamáli þeirra og því meikar málið þeirra meira sens. Ef þú
hugsar ekki rökrétt áttar þú þig ekki á því. Það segir sig nú bara
nokkurn veginn sjálft er það ekki? og eitt enn, rosalega er
leiðinlegt í vinnunni hjá okkur
HrefnaDís says:
jú það er rétt í flestum tilfellum
en þú er ekk eins og fólk er flest. en já það er úber gaman í
vinnunni okkar
Heiðdís says:
ég er heldur ekkert hjá sálfræðingi
:'D
Heiðdís says:
heey við
erum komnar með heljarinnar blogg
Jeb, þar hafiði það 
»
12.06.2007 13:16:14 / _pyrana_
Góðan dag og gleðilegt sumar. ætla bara að blogga stutt þar sem
ég er í vinnunni en ég er einmitt símadama í R.Sigmundsson þannig
að ef ykkur vantar utanborðsmótor eða flabsa þá endilega bjallið í
mig. Þetta er nú bara fínt starf, þegar það er ekkert að gera er ég
bara aðallega að flækjast um veraldarvefinn í von um að finna mér
eitthvað til dægrastyttingar. það gengur bara nokkuð vel hingað
til annars er frekar pirrandi að þurfa að hanga inni í þessu
blíðskaparveðri en ég fórna því fyrir peninginn.
Annars er mest lítið að frétta, útskriftin var á seinasta
fimmtudag ég á nú eftir að sakna árbæjarskóla þó að menntaskólinn
verði örugglega enn skemmtilegri.
Helgin var nú bara nokkuð góð en ég nenni ekki að segja frá
henni smáatriðum og þið munduð hvort eð er örugglega ekki nenna að
lesa það. ég verð samt að segja frá því að á fimmutdags nóttina þá
gerðumst ég og freyja svo illa spontanious að við ákváðum vegna svo
einstaklega góðs veðurs að sofa undir berum himni þar sem við
höfðum aldrei prófað það áður, við fórum bara með tvær tjalddýnur
& svefnpoka út í garð og sváfum þar, það var bara nokkuð
þægilegt fyrir utan þegar við rumskuðum um 3 við að það ætlaði óður
hundur að éta okkur en það reddaðist og sváfum alveg til 10 næsta
morgun og hjóluðum út í ísbúð. Það má sko með sanni segja að við
höfum varðveitt barnið í okkur þennan daginn en reyndar erum við
þannig flesta daga en´við eigum það til að taka upp á ýmsum
mis-spes hlutum þegar okkur leiðist sem dæmi má nefna
- þegar við gerðum okkur dagsferð til akranesar í 9.bekk með
strætó bara vegna þess að það var hægt.
- einhvern vetradag í 9.bekk höfðum við ekkert að gera og ákváðum
að labba út í rauðavatnsskóg og fara í blak með heitt
kakó.
- um daginn löbbuðum við heim úr smárabíó vegna þess við
trúðum ekki að jóhanna & nína höfðu gert en okkur tókst það
allavegana.
svo er líka fullt fleira en ég hef ákveðið að nefna það ekki hér
svo að við verðum ekki alveg útskúfaðar úr samfélaginu.
virkilega góður svefn

uppáhöldin, sætar á útskriftardaginn
en ég nenni ekki að hafa þetta lengra, komment vel þegin.
og svo skora ég á einhverja aðra að blogga næst
adios
Hrefna
»
02.06.2007 20:50:56 / sigga
Langadi bara svona ad deila tvi med ykkur ad eg er komin
ut til Grikklands og er i 30 stiga hita og laeti og
aetla ad vera fokking taaaaan!
Afmaelid
i gaer var fint en Trivial var ekki allveg i uppahaldio hja
morgum,, tar a medal mer haha ! tar sem eg er ekki god i tvi
! aaanyways ! ta bara adios maffakas :*
that white trash has left the
building !!
sigga
grikki 
»
24.05.2007 21:33:07 / _pyrana_
Ég sem hélt að ég
væri svo mikill þverhaus að ég myndi aldrei láta undan hópþrýstingi
en viti menn hér er ég að blogga þetta kallar maður vini sína það
er bara búið að draga mig niður í skítinn ;D nei smá glens..En ef
ég á að segja frá því sem hefur drifið daga mína þá verð ég að
skrifa bók því eins og flestir vita þá lifi ég mjög
innihaldsríku lífi! en svona til þess að gera þetta týbíska blogg
þá var dagurinn í dag svona..Skóli, í bosið, fundur, talvan en það
er mjög óvenjulegt að ég eyði tímanum mínum í tölvunni aðalega
vegna þess að ég er aldrei heima og mjög upptekinn að lífinu er
þaggi? en til þess að lengja þetta blogg aðeins því ég vil
náttúrulega ekki vera ógó lame stelpan sem bloggar ýkt stutt og
óinnihladsríkt blogg þá ætla ég að auka visku ykkar, það er nebbla
svo margt sem maður lærir í skólanum að loknum samrændu prófunum og
ef þið trúið mér ekki flettið þá þessu upp!
Fúx-
Lægsti nemandinn í bekknum.
Fabbi-
Fábjáni
Búralegur- sjálfumglaður
Frussa-
kona í óhæfilega stórum fatnaði
Glyðra-
drusla
Bos-
heimili
Nón-
klukkan er 15
Miðaftan- klukkan er 18
Náttmál- klukkan er 21
En já
þetta var nottla the most amazing ég veit, en þess má til gamans
geta að við vorum einmitt á fundi áðan vegna fyrirhugaðara
utanlandsferðar en komumst við svona eiginlega að einróma
niðurstöðu og ætlum við út eftir nákvæmlega ár.. hugsið ykkur núna
að ári liðnu þá verðum við staddar í einhverju búralegu Evrópulandi
látandi eins og fabbar...eða það kæmi mér allaveganna ekkert að
óvart ;D en já ég hef fyrir löngu áttað mig á því að hæfileikar
mínir liggja ekki í svona bloggmensku þannig við verðum að láta
þetta gott heita.
FreyjaBjörkGunnarsdóttir kveður að sinni..
Stay
tunend...dududu
»
21.05.2007 20:10:06 / _pyrana_
Heeey ákvað að blogga svona í tilefni
þess að það er mánuður síðan það var gert síðast og einnig
vegna þess að sigríður er þrjóskari en fjallageit. Ein s og
flestir vita þá eru prófin búin og eina sem við gerum núna í
skólanum er að horfa á spólur og spila pókó, sem er bara
nokkuð sweet.
Annars var
helgin bara fín, á föstudagskvöldið fór ég og hitti hana emmu beib
í langholtinu, vorum bara eitthvað að chilla ásamt lísu vinkonu
hennar. Svo á laugardaginn þá skellti ég mér í sund með gittu og ég
brann, hversu bad er það? En allavegana skelltum við okkur síðan í
bakaríið at spise. Og svo fór ég í bónus til að kaupa inn fyrir
grillveisluna hjá sigríði. Við stelpurnar elduðum þetta dýrindis
lambalæri og fengum frí skemmtiatriði frá systir siggu og það
verður nú bara að segja að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
Annars var þetta bara fínt kvöld og ég fór heim um
tvöleytið.
Á
sunnudaginn var bara chillað og fór svo með mömmu í smáralindina en
mér er ekki ætlað að kaupa föt á Íslandi þar sem ég finn mér ekki
neitt. Síðan um kvöldið fór ég með ernalicious
og heidi á spiderman 3 í smárabíó, svosem ágæt mynd en það sem
toppaði þessa ferð klárlega var í hléi og við vorum aftur að labba
inn í salinn eftir sjoppuferð og ég ætlaði að sparka svona laust í
ernu til að ná athygli hennar og þar sem ég er svo einstaklega
klaufsk þá sló ég hendinni svona ósjálfrátt aftur í leiðinni og
beint í nachosið hjá svona tólf ára strák og það flaug beint í
gólfið og allt út um allt. Greyið strákurinn var skiljanlega frekar
pirraður en ég roðnaði niðrí gólf og sprakk úr hlátri en þar sem ég
er svo góð manneskja fór ég nú og splæsti í nýtt nachos handa
drengnum. Náði svona eiginlega að halda niðrí mér hlátrinum á meðan
en þegar ég kom aftur inní sal þá bókstaflega grenjuðum við allar
úr hlátri og ég bara gat ekki hætt. Já, bara ég eða jóhanna margrét
lendum í svona hlutum við eigum nefnilega það sameiginlegt að vera
mjööööög klaufskar.
En svo í
dag þá fór ég bara í skólann fór svo í íþróttir og hljóp stífluna í
hagléli meðan aumingjarnir sem ég kalla vinkonur mínar fengu
allar leyfi vegna þess að þær þurftu einu sinni að hnerra í síðustu
viku og vildu ekki slá niður, pff segi ég nú
bara. Hvað er að verða um æskuna?
Eftir
skóla kom sigga með mér í bosið mitt og við horfðum á heroes
og fórum svo söru beibí í bónus og svo heim til ernu að
heimsækja hlödda piss. Nú er ég bara heima og fer
örugglega heim til nínu í kveld þar sem
litla kvikindið á afmæli í dag og vil ég óska henni til
hamingju með það;*

nína
beib

ein fliippuð
úr vorferðinni sem var btw. æði
Hrefna
Dís
»
22.04.2007 23:31:10 / _pyrana_
Gott kvöld, komin tími á blogg? Þar sem
enginn annar gerir það þá hef ég ákveðið að segja ykkur
aðeins frá lífi Hrefnu seinustu daga ykkur til mikillar
skemmtunar Við í 10unda bekk vorum einmitt að byrja í
vorprófunum seinasta föstudag og svo beint á eftir
vorprófunum koma samræmdu prófin, svo að líf okkar verður
mjög spennandi næstu vikur. En annars var helgin bara mjög róleg.
En á fimmtudaginn var sumardagurinn fyrsti og erna átti
afmæli;* við í pyrana vorum einmitt að selja nammi, pulsur,
candyfloss og blöðrur í árseli um morguninn, svo fór ég bara
heim að læra og um kvöldið fórum við allar stelpurnar heim
til ernu og komum henni á óvart með köku, söng og
stjörnuljósum. Ótrúlegt en satt þá tókst okkur að koma henni
á óvart en við erum nefnilega mjög ólúmskar að eðlisfari og
já svo vorum við bara hjá henni allt kvöldið að spjalla um
margt og mikið, svo fór ég bara heim að
sofa. Ég nenni ekki að segja frá allri
helginni í details en hún var svona í grófum
dráttum. Á föstud: próf, út að borða með
stelpunum og ungfrú ísland keppninni(Y), heim til jónu að
chilla og skemmta okkur við lollipop
haha Laugard: sofa, chilla, kaupa nammi með
svandísi, til ernu, heim, afmæli hjá Tinnu sem var bara mjög
fínt takk fyrir mig;*, heim til diljár ásamt svandísi að
spjalla, heim að sofa. Í dag: sofa, læra, tölvunni, reyna að
læra smá meira og svo bara bíó kl.8 með diljá og jóhönnu á
perfect stranger sem var bara allt í lagi og svo bara heim og
hér er ég. Vá, án efa eitt leiðinlegasta blogg sem
ég hef bloggað.
Það verður að gerast e-ð úber skemmtilegt
næstu helgi svo ég hafi eitthvað til að halda í lífslöngunina þessa
vikuna.
En ég er farin að horfa á one tree
hiill Bleess. Hrefna
»
15.04.2007 20:14:06 / _pyrana_

Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Sandra
Hún á afmæli í dag
Sweeet sixteen beibah, vonandi áttiru æðislegan
dag;*
kv.Pyrana
»
Síður: 1 2 3 ... 22
|
|